dc          
 
Davíð burt!

 

View Current Signatures   -   Sign the Petition


To:  Allra Íslendinga

Kæru Íslendingar!

Hérna ætla ég að vitna í grein sem birtist í Fréttablaðinu á sl. dögum eftir hagfræðiprófessorinn Richard Portes:

,,Portes fjallar um þróunina á Íslandi síðustu vikur undir fyrirsögninni: „Hræðileg mistök í hruni Íslands". Þar nefnir hann upphaf hrunsins sem var þjóðnýting Glitnis á sínum tíma að ráði Davíðs Oddssonar.

Portes segir: „Seðlabankastjórinn, Davíð Oddsson, var forsætisráðherra í 13 ár áður en hann settist í stól seðlabankastjóra árið 2005. Ákvörðun hans endurspeglaði pólitík, tæknilega vangetu og fáfræði um markaði. Ummæli hans síðar juku mjög á óstöðugleikann."

Portes nefnir að með þjóðnýtingu Glitnis hafi skammtímalánalínur til allra íslensku bankana þornað up og horfið, veðköll komu frá Evrópska seðlabankanum og ómögulegt varð fyrir bankana að mæta skuldbindingum sínum.

Þann lærdóm má læra af þessu að mati Portes að pólitíkusar eigi ekki að verða seðlabankastjórar. Davíð sé hluti af vandamálinu en ekki nein lausn á því og hann ætti að segja upp störfum strax."

Ef þú, kæri Íslendingur ert sammála um að Davíð Oddsson eigi að víkja sem fyrst sem seðlabankastjóri þá hvet ég þig að skrifa hér undir.

Sincerely,

The Undersigned

View Current Signatures
 


The Davíð burt! Petition to Allra Íslendinga was created by and written by Gunnar Diego (gunnar_diego@simnet.is).  This petition is hosted here at www.PetitionOnline.com as a public service. There is no endorsement of this petition, express or implied, by Artifice, Inc. or our sponsors. For technical support please use our simple Petition Help form.

tags:   Davíð Oddsson   iceland   Island   kreppa   seðlabanki  

Send Petition to a Friend - Petition FAQ - Start a Petition - Contributions - Privacy - Media Kit

PetitionOnline - DesignCommunity - ArchitectureWeek - Great Buildings - Archiplanet - Search
http://www.PetitionOnline.com/kreppa/petition.html © 1999-2007 Artifice, Inc. - All Rights Reserved.