|
|
|
Áskorun til Ríkissaksóknara |
To: PublicVið óskum eftir því að ríkissaksóknari lögsæki Magnús Þór Hafsteinsson, varaformann Frjálslynda Flokksins, fyrir eftirfarandi lögbrot:
1. Magnús hefur gerst sekur um mismunun gagnvart fólki byggðum á kynþætti en hann breytti t.d. um skoðun við móttöku flóttamanna þegar hann komst að því að arabar kæmu til landsins en ekki hvítir menn frá S-Ameríku. Hann hefur ítrekað þennan rasisma í Silfri Egils þegar hann sagði mikinn mun vera á flóttafólki frá Palestínu og Júgóslavíu og sagði að um öðruvísi fólk væri að ræða.
2. Magnús hefur gerst sekur um mismunun gagnvart fólki byggða á þjóðerni en hann hefur sagt að ekki sé gott að fá fólk frá viðkomandi landsvæði til Íslands. Ummæli hans í Silfrinu má einnig túlka sem þjóðernisfordóma.
3. Magnús hefur gerst sekur um mismunun gagnvart trúarhópum en hann hefur sagt það á bæjarfundi m.a. að ómögulegt sé að fá múslima til landsins vegna þess að þeir aðlagist ekki.
4. Magnús hefur gerst sekur um mismunun gagnvart menningarheimum en hann hefur sagt fólkið koma frá allt öðrum menningarheimi og það falli ekki inn í íslenskt samfélag vegna frumstæðra hátta.
5. Magnús hefur gerst sekur um mismunun gagnvart kynjastöðu fólks en hann hefur dregið í efa að gott sé að fá hingað inn í landið fátækar einstæðar mæður með börn.
6. Magnús hefur gerst sekur um að virða að vettugi þær skuldbindingar sem Ísland hefur vegna móttöku flóttamanna.
7. Magnús hefur gerst sekur um að lýsa rangt frá lokuðum fundum bæjarráðsmanna Akraness án heimilda og hefur vitnisburður hans stangast á við önnur vitni og skýrslur.
8. Magnús hefur gerst sekur um níð gegn virtum stjórnmálaflokkum, stofnunum og anti-rasistasamtökum.
9. Magnús hefur gerst sekur um persónuníð gegn mannréttindasinnum á borð við Gísla S. Einarssyni, Össi Skarphéðinssyni og Baldri Kristjánssyni.
Möguleg lögbrot:
1. Rannsakað verði hver þáttur Magnúsar er í að hafa búið til og/eða hvatt til undirskriftalista gegn manneskjum.
2. Rannsakaður verði þáttur Magnúsar í að skapa hatur gegn verðandi samborgurum sínum.
Við óskum þess að ríkissaksóknari dragi Magnús fyrir dómstóla vegna brota á eftirfarandi lagagreinum:
Stjórnarskráin:
65. gr. [Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.
[Nú fremur opinber starfsmaður refsiverðan verknað og má þá í opinberu máli á hendur honum svipta hann heimild til að rækja starfann, ef hann telst ekki lengur verður eða hæfur til þess.
Almenn Hegningarlög:
68. gr. [Nú fremur opinber starfsmaður refsiverðan verknað og má þá í opinberu máli á hendur honum svipta hann heimild til að rækja starfann, ef hann telst ekki lengur verður eða hæfur til þess.
115. gr. Hver, sem opinberlega skýrir heimildarlaust eða vísvitandi rangt frá því, sem fram hefur farið við kosningar þær og atkvæðagreiðslur, sem í 102. gr. getur, eða því, sem gerst hefur á fundum eða starfi opinberra samkomna, nefnda, stjórnvalda eða dómstóla, skal sæta sektum ?1) eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
141. gr. Opinber starfsmaður, sem sekur gerist um stórfellda eða ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 1 ári].
[233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna] vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar] sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
235. gr. Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári.
Orð höfundar þessarar kröfu
Um langt skeið hefur Magnús barist gegn mannréttindum en fór núna sérstaklega út fyrir allt velsæmi. Fyrir Magnús skiptir líf kvennana, barnanna og afkomenda þeirra engu máli. Ef menn af hans gerð eru ekki lögsóttir og dæmdir fyrir brot sín eykur það hættuna á því að aðrir slíkir rísi upp og að skoðanir sem þessar verði almennt viðurkenndar af samfélaginu. Lögin eru til staðar og það er því skylda ríkissaksóknara að draga Magnús fyrir dóm og lögsækja hann fyrir lögbrot sín.
Ég hvet þig lesandi góður til að láta rétt flóttafólksins þig varða og skrifa undir þennan lista.
Sincerely,
The Áskorun til Ríkissaksóknara Petition to Public was created by and written by Sveinn Helgason (shelgason-public@hotmail.com). This petition is hosted here at www.PetitionOnline.com as a public service. There is no endorsement of this petition, express or implied, by Artifice, Inc. or our sponsors. For technical support please use our simple Petition Help form.
share:
blogger
del.icio.us
digg
facebook
furl
reddit
slashdot
send to a friend
Send Petition to a Friend - Petition FAQ - Start a Petition - Contributions - Privacy - Media Kit
| PetitionOnline - DesignCommunity - ArchitectureWeek - Great Buildings - Archiplanet - Search | |
| http://www.PetitionOnline.com/magthor/petition.html | © 1999-2007 Artifice, Inc. - All Rights Reserved. |