dc          
 
Áskorun til borgarstjóra um að halda starfsemi Café Rosenberg að Lækjargötu 2

 

View Current Signatures   -   Sign the Petition


To:  Borgarstjórinn í Reykjavík

Virðulegi borgarstjóri.

Við undirrituð viljum með bréfi þessu skora á borgaryfirvöld að leyfa veitingahúsinu Café Rosenberg að halda áfram því mikilvæga hlutverki sem það hefur til þessa gegnt í íslensku tónlistarlífi, sem felst ekki síst í styrkri handleiðslu Þórðar Pálmasonar. Café Rosenberg hefur fyrir utan sögulegt gildi skipað veglegan sess í hugum og hjörtum tónlistarfólks á öllum aldri um allan heim. Sem miðpunktur lifandi flutnings á ferskri tónlist í bland við reyndari listamenn hefur starf Þórðar Pálmasonar gefið ótal tónlistarmönnum sem í dag njóta hylli þjóðarinnar sín fyrstu tækifæri til að þroska sinn tónlistarferil. Við teljum að staðsetning Café Rosenberg að Lækjargötu 2 sé ekki síst mikilvæg í þessu samhengi, þar sem þetta veitingahús hefur gegnt því hlutverki að vera menningarmiðstöð á sviði tónlistar og bókmennta. Þar hafa listunnendur af öllu tagi haft á vísan að róa, og getað notið vandaðrar tónlistar, bókmenntaviðburða og ýmissa annarra listviðburða, sem gerir Café Rosenberg einstakt sinnar tegundar á landinu, og þótt víðar væri leitað. Rómur staðarins hefur borist um allan heim, og þegar fregnir bárust af áfalli því að Rosenberg væri lokað vegna undangenginna atburða lýsti fjöldi tónlistarmanna víða um heim yfir stuðningi sínum við staðinn og við Þórð, í orði og á borði. Fyrir utan tónlistarmenn frá Hollandi og Ástralíu sem lögðu okkur lið við tónleika sem haldnir voru til styrktar Rosenberg hafa okkur og Þórði borist samúðar- og stuðningskveðjur frá listamönnum og velunnurum í Þýskalandi, Englandi, Bandaríkjunum og víðar. Í ljósi alls þessa viljum við beina þeim eindregnu óskum okkar til borgarinnar að þessi mikilvæga menningarmiðstöð í Lækjargötunni fái að starfa áfram, og að óeigingjarnt starf Þórðar Pálmasonar verði metið að verðleikum, og fái að halda áfram að hjálpa íslensku tónlistarlífi að vaxa og dafna.

Virðingarfyllst,
undirritaðir.

Sincerely,

The Undersigned

View Current Signatures
 



 
The Áskorun til borgarstjóra um að halda starfsemi Café Rosenberg að Lækjargötu 2 Petition to Borgarstjórinn í Reykjavík was created by Tryggingasamsteypa Þórðar Pálmasonar and written by Eyvindur Karlsson (ek@eyvindurkarlsson.com).  This petition is hosted here at www.PetitionOnline.com as a public service. There is no endorsement of this petition, express or implied, by Artifice, Inc. or our sponsors. For technical support please use our simple Petition Help form.

share:   blogger     del.icio.us     digg     facebook     furl     reddit     slashdot     send to a friend

Send Petition to a Friend - Petition FAQ - Start a Petition - Contributions - Privacy - Media Kit - Comments and Suggestions

PetitionOnline - DesignCommunity - ArchitectureWeek - Great Buildings - Search
http://www.PetitionOnline.com/rosen/petition.html
dg
© 1999-2005 Artifice, Inc. - All Rights Reserved.